Guestbook

 

Skrifa í gestabókina

26.02.2007
þér & þínum tekst aaaldrei að taka allt dóp sko!..en samt flott að reyna ;) en það finnið ekki sko helminginn af dópneyslu fólki sko!..þú getur ekki bara haldið að þú sért einhver ofurhetja sem þykist geta bjargað öllum heiminum frá dópi&rugli..en flott hjá þér samt að reyna ;) en flottflott!
25.02.2007
Þetta er frábært hjá þér,en skólinn og foreldrar ættu líka að taka sig saman um að taka þvagprufur reglulega til að reyna að sporna við að fleiri börn og unglingar verði ekki að neytendum og sölumönnum.
Baráttukveðjur móðir fyrrverandi fíkla og sölumanna.
25.02.2007
þú getur aldrei tekið allt dópið á landinu, lærðu að lifa með því. fjármagnaðu frekar meðferðir og hjálpaðu til við að bjarga mannslífum heldur en að leika súperman og taka burtu allt það illa. það mun aldrei gerast, færð hrós fyrir að reyna.
það er komin tími til að þið farið að horfast í augu við raunveruleikan og sætta ykkur við það að það skiptir ekki máli hversu mörgum miljónum þið eyðið í að leigja gegnumlýsingar bíla þá náiði aldrei að fjarlægja dópið. þið finnið ekki 90% af því sem er flutt út þannig að þú og þínir ættuð að taka puttan úr rassinum á ykkur og fjármagna hjálpina, hún skiptir meira máli !
25.02.2007
það er ekki nóg að fjármagna fyrir lögregluna hvað með meðferðaheimilinn sem hafa engann penning til að geta hjálpað þeim sem eru í neyslu en vilja komast á beinu brautina það er eins og neytindur séu bara vandamál og eru hunsaðir það er svo margir sem vilja hætta en geta ekkert farið og fengið hjálp því það er ekki pláss fyrir alla í meðferð og eina meðferðastofnuninn sem er með gott starfsfólk er vogur og þeir eru með þriggja mánaða biðlista og hafa engan penning til að gera einhvað eins og laga húsnæðin og ekki veitir af. það er eins og fólk gleymi þeim bara og vona að losna við það vandamál með því að ná dópinu þeirra sem er ekki nóg þau verða enþá fíklar og finna einhvað annað til að komsast í breyt ástand þannig fókl sem er að segja takk fyrir þessu átaki þið verðið að hugsa aðeins lengra en þangað. mín skoðun er sú að sem skiptir mestu máli er að halda gangandi meðferðastonunum hér á landi til geta tekist á vandmálum fíkla og hjálpað þeim...áður en einhver drepur sig...
vonað að þið skilijið þetta!!!!
25.02.2007
Þetta er svo heimskulegt en gott að þú hafir eitthvað að lifa fyrir! Hvað með fólkið sem fer á fyllerí um hverja helgi og berja konuna sína og segjast svo ekkert muna. Það verða samt ekki allar alkar sem drekka og ekki heldur allir dópistar sem nota þetta:::::::::::::
25.02.2007
hæhæ þetta er flottasta síða sem eg hef séð í langan tíma eg hef aldrey vitað að íslendingar væru svona sterkir! en einn fyrir alla og allir fyrir einn er það ekki svona ekkurn veigjin ? eg mun hjálpa öllum í kringum mig að verða edrú sem eru í þesssu ég á sjálfur langan feril og meira en 4ára fangelsissdóm að baki krakkar ekki prófa þetta ! þetta er ógeðslegasta og skemmir ekki ykkur heldur fjölskylduna og vini ætingja og svo framveigjis takk takk
25.02.2007
sé hérna þegar ég les hérna í gestabókinni að þetta sé uppeldinu að kenna þetta er því alls ekki að kenna, þetta er félagsskapurinn sem að er að gera þetta, krakkar eru að segja að þetta sé allt í lagi það gerist ekkert þótt þú prófir þetta nokkrum sinnum, síðan lendir fólk uppi sem fýklar, mér finnst bara að foreldrar ættu að ræða þetta við börnin sín segja þeim hvað þetta getur gert, og mér finnst að skólar ættu að fræða fólk meira um þetta, eins og ég er kennari og mér finnst enginn fræðsla um þetta. Takk fyrir frábært átak og gangi þér vel!
25.02.2007
Flott átak sem að þú ert með í gangi þarna,vona bara að þetta virki á krakka, veit um krakka í 7. bekk og uppúr sem að eru í þessu rugli, er sjálfur í 9. bekk og meira en helmingurinn af 9. bekk er í svona rugli en mér finnst þú bara vera að standa þig vel í þessu og vona innilega að þetta gangi, ég kvet bara fólk til að styrkja þetta átak, fólk sem að er í vafa með það prófið bara að hugsa þetta gæti verið barnið mitt sem að er í svona eða ættmeni eða bara vinir barnsins. Og það drekka svona 60-70 % krakka sem að eru í 8. - 10. bekk í grunnskóla, mér finnst eiginlega líka að skólar ættu að gera eitthvað í þessu, það eru krakkar að koma með þetta í skólann, t.d það eru vissir krakkar með mér í skóla og þeir eru að koma með Munntóbak og annað í skólann og voru næstum teknir með hass í skólanum, og eru í 9. Bekk, þeir eru bókstaflega að drepa sig með þessu framhaldi, en ég bara hvet alla krakka til að prófa þetta ekki þú verður háður því, flestir segja já ég ætla bara að prófa einu sinni og síðan alltaf bara einu sinni enn þangað til að þau fara í meðferð eða bara undir mold.
24.02.2007
En hvað með áfengi, það er eiturlyf og deyja langtum fleirri af því heldur en hinum eiturlyfjunum sem þú nefnir á þessari síðu. Svo er það alveg jafn mannskemmandi og slæmt og hitt. En svona er þessi áróður og þetta kjaftæði.
24.02.2007
Mér sýnist að þessi síða sé meira um að upphefja sjálan sig (Svavar Sigurðsson) en að gera það sem hún ætti að gera, það er líka eitt og annað sem maður setur ? við sem kemur manni til að hugsa hvort að ekki sé allt í lagi sumstaðar

GG
23.02.2007
Það er með eindemum að sumt fólk skuli gagngrýna þetta þjóðarátak hugsjónarmanns,
Látið manninn í friði og þú sem hefur ekkert annað að gera en að sitja fyrir framan tölvuna þína allan daginn með skítkast,og leiðindi...ég get ekki annað en vorkennt þér.
23.02.2007
Sæll Svavar,
Það er gott að þú skulir hafa þessa hugsjón að koma eiturlyfjum ekki inn fyrir landsteinanna. Það þarf að byrja á
unglingunum, segja þeim frá skaðsemi dópsins og koma þeim í skilning hversu mikið eiturlyf hafa eyðilagt heilu fjölskyldurnar, nú svo eru alltaf gagngrýnisraddirnar sem gera ekki annað en að upphefja hassið og marijuana,
OK, það er þeirra mál ef þeir kjósa að gera það,en mikið ofboðslega er ég fegin að loksins skuli einhver þora að gera eh. róttækt,Láttu alla gagngrýni sem vind um eyrun þjóta og vertu þú sjálfur..Baráttukv. Kristín
22.02.2007
Frábært framtak að stofna svona heimasíðu :) En það er ranghugsun hjá mörgum að það sé eitthvað uppeldinu að kenna að unglingar leiðist út í fíkniefni
22.02.2007
22.02.2007
Hæ það er flott að þið eruð með svona síðu...var að sjá þetta í sjónvarpinu sko en bless
22.02.2007
já þetta er æðislegt það sem þið eruð að gera...vel auglýst..sá þetta í sjónvarpinu :) Bara gangi ykkur alveg rosalega vel.

- 1 með vinkonu í vanda :'(
22.02.2007
Ég vil þakka þér Svavar fyrir frábært starf. Frábært hjá þér að opna heimasíðu og kynna starfið þitt. Núna er bara okkar að hjálpa þér að vinna bug á þessu djöfli. Það er hægt..ef við leggjum öll krafta okkar á eina vogarskál...þá munum við sigra. Ef það á ekki að styrka krafta þín og baráttu þá veit ekki hvað maður ætti að styrkja. Þú er að gera það mögulegt að hægt er að ná þessum smásölumönnunum sem eru að selja börnum okkar dóp...
Takk fyrir
Kveðja móðir
22.02.2007
mér finnst gott að einhver gerir svona góðverk:) og ég er sammála ykkur BERJUMST GEGN EITURLYFJUM!
21.02.2007
mér finnst þetta alveg frábært að eitthver skuli gera þetta :) ! Keep up the good work ;) Þekki sjálf marga sem eru í neyslu og ekki er það fögur sjón!
21.02.2007
Þetta er mjög góð hugsum hjá þér Sævar en má ég spyrja þig að einu? Hvar í heiminum hefur það virkað að auka löggæslu og gera viðurlög strangari við fíkniefnasölu? Unglynar í Bandaríkjunum reykja meira kannabiss en jafnaldrar þeirra í Hollandi þar sem efnið er leyft. Þetta einfaldlega virkar ekki!
20.02.2007
Haldiði áfram að gera góða hluti þarna á löggunni og tollinum. Pabbi minn varð brjálaður á þessu helvíti og heldur núna að mamma mín og Davíð Oddson sé að reyna að drepa sig! Reyniði bara að ná þessum höfuðpaurum, ekki að stinga Lalla John inn og eyða plássi á Litla Hrauni fyrir ölvun á almannafæri, hálfvitar!

Say NO to Lucy in the sky with Diamonds
(og allt hitt ef þú vilt)
20.02.2007
Til hamingju með stórafmælið í gær.
Kærar þakkir fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur íslendinga. Og þakkir fyrir að gefa okkur tækifæri á að taka þátt í baráttunni með heimsóknum þínum og þyggja styrki.

kv,
Rósalind
Vélsmiðja Guðmundar ehf.
19.02.2007
mér fynst þetta vera alveg rosalega gott framtakk hjá þér.
ég er sjálf óvirkur fíkill og vona það svo heitt og innilega að það þurfi einginn að ganga í gegnum það sama og ég haltu áfram að vinna svona gott starf
19.02.2007
Geriði það að ekki styrkja þessa vitleysu, notiði peninginn ykkar í eitthvað gagnlegt eða skemmtilegt.

Meðan eiturlyfjalögin eru jafn óréttlátt og raun ber vitni um á Íslandi þá næst engin árangur. Eitt er alveg ljóst að þeir sem stjórna eiturlyfjamarkaðinum á Íslandi vilja ekki að lagaumhverfið breytist á neinn hátt. Það eru hvort eð er ekki þeir sem lenda í fangelsi...
Hvernig væri að fara líta á eiturlyfjaneysluna sem heilbrigðisvandamál frekar en glæpavandamál.

Svavar minn. Til hamingju með þitt framlag að halda mörgum íslenskum ungmennum áfram í heljargreipum eiturlyfjadjöfulsins.
19.02.2007
Til hamingju með nýju síðuna. Vona að þú haldir áfram ótrauður og fáir sem flesta með þér í þitt (okkar) lið í baráttunni gegn eiturlyfjum, ekki veitir af!
Takk fyrir það sem þú hefur þegar gert. Kveðja, Guðný.
19.02.2007
takk fyrir að míga yfir persónufrelsi!
18.02.2007
Til hamingju Svavar og takk fyrir þitt góða starf. Æðri máttur fylgi þér og okkur öllum. Kv Lára.
17.02.2007
Flottastur Svavar:) Langar að taka undir orð hérna að neðanverðu: Dópistar eru einsog krabbamein:dreifa sér og drepast svo:) Eymd er valkostur. Stend með þér Svavar. Kv Stella.
17.02.2007
Frábært.
Gaman að sjá að einhver taki svona upp og haldi svona síðu gangandi.
Fíkniefni eru orðin alltof algeng á íslandi og það þarf að losna við hér á landi!
17.02.2007

Cannabis drug may help fight obesity. ... for the treatment of anaemia associated with chronic kidney disease and cancer chemotherapy for nearly 20 year, Cannabis has also been shown to kill cancer cells and to reduce tumour growth , LOOK for your SELF and think about it.
http://abcnews.go.com/Health/wireStory?id=2834927

http://www.sciencedaily.com/releases/2005/10/051019003339.htm

16.02.2007
Það þarf að ráðast á rót vandans sem er tímaleysi foreldra - flest þessara barna sem leiðast út í eiturlyf hafa fengið lélegt uppeldi þar sem foreldrarnir hafa engan tíma fyrir þau. Svo lengi sem eftirpurnin er til staðar - lifa undirheimarnir. En þetta er stórkostlegt hjá þér Svavar, sannarlega skref framávið! Frábært ;0)
16.02.2007
mjög gott að einhver kemur með svona átak höldum áfram að eiða fikniefnnum
kveðja móðir af suðurnesjum
16.02.2007
mjög gott,það er mikill þörf á svona átaki með von um gott gengi
16.02.2007
mjög gott og þakkavert framtak.
16.02.2007
Frábært framtak!
16.02.2007
gott hjá ykkur ;) :) ;)
15.02.2007
Frábært frammtak. Ég er 18 ára og þekki alltof marga sem hafa ánetjast fíkniefnum.
14.02.2007
Tek ofan fyrir þessu frábæra framtaki! Við verðum að standa vörð um börnin okkar og sjá til þess að þeir sem hagnast á því að leggja líf þeirra og fjölskyldna þeirra í rúst, fái refsingu við hæfi.
12.02.2007
Sæll Svavar og félagar.
Til hamingju með þessa flottu síðu. Frábært framtak hjá ykkur. Það er gaman að sjá að einhver þorir og gerir loksins eitthvað rótækt. Megi Guð og gæfa fylgja ykkur í þessu verkefni.
Ísland væri betri staður ef það væru fleiri hérna eins og þú.
kveðja Inga
11.02.2007
Frábært framtak. Ég er búin að sjá 2 góða vini mína fara mjög illa af fíkniefnum, þetta er hræðileg fíkn og erfitt að horfa uppá þetta. Vonandi gengur þetta átak sem best og persónulega finnst mér að lög um fíkniefni og notkun þess eigi að herða bærilega mikið. Þetta land er of frjálst í svona málum og finnst mér eins og safna ætti undirskriftalista eða eitthvað í þá áttina og senda á Alþingi og athuga viðbrögð þeirra. En ég ætla nú ekki að hafa þetta langt, vildi bara hrósa þér og öðrum fyrir þetta.
Gangi ykkur sem allra best, þið fáið minn stuðning.
11.02.2007
Ég er kannski heimsur lítill unglingur, en mér finst að það ætti að setja miklu harðari refsinngar fyrir fíkniefni, við erum að tala um framtíð landsins og æskunnar! Í löndum eins og singapore þar sem eru dauða refsingar fyrireiturlyf sést það bara ekki lengur! Gefa fæolki 2ár til að verða clean, og síðan verða þessir "dealers" og þeir sem eru að flytja þetta að hafa vit á því að lífið þeirra er ekki þess virði! Fljótleg, en sársaukafull leið fyrir suma til að ná öllu úr þessu landi!
10.02.2007
frábært framtak hjá þér númi minn, óska þér til hamingju. kveðja
Eitur Finnur
09.02.2007
Hvað ætlar hr. Svavar Sigurðsson að hann græði á þessu? Peninga? Frægð? Sálarró? Vist í Himnaríki? Já haldið áfram að reyna að ráðast á frjálsan vilja mannskepnunar, viðleitni mannskeppnunar til að brjóta heimskuleg boð og bönn verður aldrei stöðvuð. Neysla mannsins á vimugjöfum verður aldrei stöðvuð. Ég hæðist að þessu framtaki.

Kveðja
Satan
07.02.2007
Góóóóðuuuur
04.02.2007
Glæsileg síða og verðugt málefni Svavar! Ég man eftir átaki fyrir nokkrum árum sem þú stóðst fyrir með slagorðinu segjum nei við fíkniefnum og mynd af fíkniefnadjöflinum að faðma sprautuna. Ég tel að þetta átak hafi hjálpað mér ásamt öðru að forðast fíkniefni og þann heim.

Með Þökk Fyrir Framtakið

Þöll =)
30.01.2007
Sem núverandi fíkniefna notandi sem rakst á þessa síðu vil ég segja; þessi sjúkdómur er mjög varasamur. Þetta hefur mikil áhrif á líf þitt og flest allra í kringum þig, kannski bara meira afþví að þeir eru ekki að deyfa sig daginn út og inn til að slökkva á öllum skítnum. Vafamál hvort að Svavar geri eitthvað gagn því að já það er alltaf eftirspurn og fólk svalar sinni fíkn no matter what. Hann er allavega ekki að eyða peningunum sínum í byssukúlur. Það eru til verri hlutir en fíknissjúkdómurinn er með því skítnasta sem maður eins og ég þarf að ganga í gegnum á lífsleiðinni, sem og fjölskylda mín. Leitið ykkur hjálpar dópistarnir ykkar :) Bless
28.01.2007
Þar sem þetta er gesta bók ætla ég að segja: Að ég var bara að surfa um á netinu, fín síða. Því miður þá virðist þessir dópistar ekki sjá muninn á gestabók og spjallsíðu. Meiri sauðirnir þessir dópistar!

Dópistar eru eins og krabbamein. Reyna að breyða sér út en drepast svo.

28.01.2007
Fróðlegt væri að sjá hve mikið kemur inn af gjafafé og hve mikið fer í tækjakaup. Er það satt að stærstur hluti innkomunnar fari í einkaneislu og uppihald á Svavari Sigurðssyni? Hvers vegna rennur allt styrktarfé inná einkareikning Svavars Sigurðssonar? Er bókhaldið eitthvað líkt bókhaldi Byrgisins?
24.01.2007
ef ríkistjórnin mundi leifa ný lög sem er lausn á þessu öllu þá væru ekki fíkniefni til á landinu.


Sá sem kémur upp um dóp sala,eiturlifja smiglara eða maneskju sem fjármagnar sölu og smigl á eiturlifjum á rétt á því að fá allan ágóðan af þeim eiturlifjum sem seld hafa verið og eða fá pening sem samsvarar sölu efnana.

Þá gjæti salin og fjármagnarin ekki géta treist neitendunum og þá mundi þessi eiturlyfja píramíti hrinja eins og spilaborg. Alþíngi er ekki inn í nútímanum þetta eru breitir tímar og það þarf að breita til
23.01.2007
Já það er svo sannarlega sorglegt að einhver þurfi að finna að því að með látum hvað Svavar er að gera.

Láttu ekki deigan síga Svavar, við hvert böst minnkar framboðið og verðið hækkar, sem er af hinu góða, það gerir aðgengið erfiðara, sérstaklega fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í þessari neyslu, þeir munu kannski hugsa sig tvisvar um áður en þeir eyða peningunum í þetta.

Hinir sem eru orðnir háðir eiturlyfjum á annað borð, stendur á sama, þeir munu finna sitt stuff no matter what, það er þannig sem þessi sjúkdómur virkar.

Eitt enn, þeir sem eru á móti því sem Svavar er að gera eru mjög sennilega illa farnir eiturlyfja sjúklingar, sem finnst bátnum vera ruggað full harkalega.

Rökin um að einhver megi gera það sem hann vill við sitt líf, það er að sjálfsögðu rétt, en er það ekki þannig að neysla ólöglegra fíkniefna er ólögleg? og er þá ekki verið að brjóta landslög?, þá er þetta EKKI þitt einkamál lengur.....eða hvað?

Kv.
Ice
23.01.2007
Nú ætla ég að segja þetta sem gamall fíkniefna notandi.
Hugsið líka um aðra ekki bara rassgatið á sjálfum ykkur. Hvað haldiði að séu margar fjölskyldur sem hafa misst ástvini og ættingja útaf þessu? Og ekki reyna að segja að þetta bittni ekki á neinum nema sjálfum ykkur. Hvað haldiði að sé mikið um ofbeldi, innbrot og annað slíkt sem fylgir þessu? Veit um ebdalausar rosalegar sögur sem gefa mér hroll þegar ég hugsa til baka, og ég á margar sem ég er sjálfur í hlutverki og það þykir mér verst...

Hvort það sé vitleysa hjá Svavari að gefa allt sem hann á í þetta er bara persónulegt mat hvers og eins, en fyrir það sem hann hefur gert ættuði að vera þakklátir, því ef allir væru eins og þið þá væri ég ekki til í að búa á þessu skeri.

Kv,
Einn sem á æskuna eftir, og ætlar að nýta hana.
22.01.2007
Hvaða sorglegu einstaklingar tala með þessum hætti sem hér hefur verið gert í þessa gestabók? Það er ekkert að því að hafa hugsjónir og berjast með þeim svo lengi sem þær skaða ekki aðra. Hugsjón Svavars er til fyrirmyndar og engin ástæða til að setja útá hana. Hins vegar eru hérna nokkrir dópræflar sem annað hvort kunna ekki að rita íslenskt mál eða eru á skjön við samfélagið. Megi slíkt fólk finna sér betri farveg í lífinu og óska ég þeim alls hins besta.

kv.

The Silver Fox
22.01.2007
Það sem þú og fleiri virðist engan veginn vilja skilja, er að meðan það er eftirspurn eftir vímuefnum þá verður til nægt framboð.
Við hvert stórt böst sem er gert, hækkar verðið á vímuefnum, og fleiri fara út í innflutning í gróðavon.
Því meira sem þér verður ágengt, koma fleiri nýjir inn.
Ég verð að segja að þú ert einn mesti vitleysingur sem um getur, að gefa allar eigur þínar til vonlauss málstaðar, sem þverbrýtur rétt einstaklingssins til þeirra meðala sem hann sjálfur vill til eigin lækninga.
Hvað ætli þú hafir persónulega lagt miklar aukakvalir á þá MS sjúklinga, krabbameinssjúklinga, eyðnissjúklinga osvfrv... sem vilja frekar THC til að lina þjáningar sínar en lyfjakokteil upp á 5-6 lyf við sama kvilla, lyf sem kosta ríkið brjálæðislegar upphæðir árlega, Margallt meira en þú getur nokkurntímann gefið sjálfur.

Megir þú hafa mikla skömm fyrir.
Kveðja
Íslendingur
21.01.2007
Einn spurning. Hvað helduru að gefi þér rétt til að banna mér að gera það sem ég vil við mitt littla líf hér á íslandi? Sérstaklega ef ég geri það aðeins við minn líkama. Ekki er ég að meina neitt íllt með þessu né nota ég fíkniefni, ég vil bara skilja hvað gefur þér réttin til að halda því fram að ég meigi ekki gera eitthvað við mig
20.01.2007
Mér finnst þetta mjög mjög flott af þér að setja þetta markmið!


Bestu kveðjur,
Unglingur.
20.01.2007
Stórglæsileg vefsíða og verðugt málefni!

Ég óska þér Svavari til hamingju með nýju síðuna, hún er til fyrirmyndar og virkilega flott, eins og flestar þær vefsíður sem strákarnir hjá Allra Átta hafa gert í gegnum tíðina.

Baráttukveðjur,
Stuðningsaðilli Þjóðarátaksins.